sól og sumar í Dk
hæhæ hérna er allt á fullu í sumar og sól. Við erum á fullu í pallagerð hérna í garðinum og verðum bráðum komin á bikiní. Ef veðrið heldur svona áfram þá veit ég ekki hvað. Sumir eru hræddir um að þetta sé sumarveðrið sem er að leika um okkur núna og svo fáum við ekki meira en við íslendingarnir erum viss um að þetta verði svona í allt sumar.....
En annars er svo sem nóg að gera í vinnum hjá okkur hjónunum og skólum hjá þeim yngri. Íþróttalífið er jú alltaf a sínum stað og fótboltinn byrjaður aftur og kominn á fullt. Guðjón er að þjálfa Elnu og hennar lið og það er mjög vinsælt hjá Elnu. Stelpunum hefur fjölgað helling og sem betur fer eru þeir tveir þjálfararnir og með 3-4 aðstoðarmenn. Símon er að æfa með sínum aldurshóp og fer stundum á æfingar með aðeins eldri strákum. Þegar það gerist er hann á 4 æfingum í viku, honum finnst það nú ekki slæmt drengnum. Sigvaldi æfir nú með sínu holli en er svona eitthvað að kíkja á junior liðið. hann veit ekki alveg hvar hann vill vera blessaður. Nú Guðjón fer að sjáflsögðu á æfingar með sínu liði og er svo hálf dauður tvo daga á eftir og sama ræðan er sögð nokkrum sinnum í mánuði; "jæja nú held ég að ég fari að hætta þessu". En ég er nú farin að þekkja minn mann og nikka bara hausnum án þess að gera nokkrar væntingar. Ég held að þetta sé svona ákveðinn varnarmekkanismi hjá mér.
Djamm á morgun hjá okkur ísl. stelpunum og kosingarvaka hjá íslensku körlunum hérna í Harlev. Alltaf nóg að gera í félagslífinu.
jæja búin að ræða vinnu, skóla, íþróttir og félagslíf, jú ég er að fara í kvennahlaup á morgun í sól og sumaril.
var ég búin að nefna sólina hérna hjá okkur.
Gleðilegt sumar allir saman og bestu kveðjur frá Harlev
Fréttir af okkur
Já en og aftur erum við léleg að skrifa á síðuna hérna enda erum við með tvær síður í gangi þessa og svo http://www.danskur.dk og það var nú meiningin að nota bara eina síðu en svona hafa hlutirnir þróast.
Af okkur er bara allt gott að frétta ég er á fullu í vinnunni eins og Dikka og nú fer að styttast í alvöruna hjá mér þegar ég tek mína fyrstu sólarhrings/viku vakt þ.e.a.s. þann 17.apríl.
Sigvaldi er á fullu í handboltanum en tímabilið þar fer að líða undir lok, Þeir klára núna í lok mars en svo fara þeir til Spánar um páskana í keppnisferð. Hann er líka byrjaður á undirbúningstímabilinu hjá fótboltanum og eru þeir búnir að spila nokkra leiki þar og tapa þeim öllum 
Elna er líka á fullu í handboltanum og stendur sig eins og hetja og hefur hún verið að spila með eldri flokknum af og til ásamt sínum flokki. Hún er mjög hörð af sér í handboltanum. Fótboltinn fer að byrja hjá henni líka og tók bekkurinn hennar þátt í skólamót um daginn og gekk það bara vel hjá henni, og að eiginn sögn þá bar hún af í sínum aldursflokki
þótt að liðinu hafi nú ekki gengi eins og best var á kosið sem sagt 1 sigur, 1 jafntefli (skandall hjá þjálfara) og 1 tap. Elna er líka í sundi 1 sinni í viku þannig að það er nóg um að vera hjá henni.
Símon er einnig í handboltanum og gengur honum rosalega vel, hefur hans lið nánast unnið alla leik í þeim mótum sem þeir hafa tekið þátt í. Það er rosaleg gaman að sjá drenginn reyna apa eftir stóru strákunum, sem sagt að lyfta sér upp og skjóta. Hann er líka að æfa sund 1. sinni í viku og svo eins og hjá hinum þá fer fótboltinn að byrja.
Svona almennar fréttir af okkur þá lítur út fyrir að við hjónin séum á leið til Gautaborgar í lok júlí á tónleika með U2. Svo standa fyrir dyrum framkvæmdir á húsinu, það átti alltaf eftir að ganga endanlega frá flutningnum á herbergjum krakkanna upp. Það sem eftir er að klára setja glugga á hvort herbergi fyrir sig og svo eina hurð út á svalirnar.
halló
hvað er að gerast hérna á þessari síðu, er enginn búinn í skólanum til að blogga????? en ok ég þarf að setja mig í stellingar og rita niður nokkur vel valinn orð. en fyrst þarf ég að íhuga hvað ég ætla að skrifa hérna svo þangað til ......
Sunnudagur að kveldi kominn
Sælt veri fólkið. Nokkrar línur frá okkur héðan úr kompunni eins og við köllum það. Kompan er námsaðstaðan okkar Guðjóns þar sem við sitju þessa dagana bak í bak og stundum okkar nám. Það er nú lokaspretturinn hjá okkur og vonum við að það gangi allt saman vel. Það er búið að baða börnin og sum þeirra sofnuð enda skóladagur framundan. Skólahald er allt komið á fullt og heimanám líka. Sigvaldi var að semja þýskustíl þar sem húsmóðirin komst að því að hennar studentspróf er vel grafið í mynninu. Ekki var mikil hjálp í þeirri gömlu. Er nú bara ekki frá því að heimilisfaðirinn sé ögn sleipari í þýskunni!!
Elna var að spila handboltaleik í dag með stúlkum sem eru einu ári eldri en hún og var því að keppa upp fyrir sig. Hún stóð sig bara vel daman og náði meira að segja að setja inn eitt mark. Það er nú ekki mikið skorað í þessum leikjum en ég held að liðið þeirra hafi skorað 5 mörk í allt.
Sigvaldi var líka að keppa og þar eru skoruð öll fleiri mörk en leikurinn endaði 24-29 fyrir Harlev liðinu. Þetta var spennandi leikur en Harlev liðið fór upp um deild núna um jólin. Þa var nú ekki verra en að þeir unnu leikinn og sýndu og sönnuðu að þeir ættu alveg heima í þessari deild.
Símon er nú ekki mikið að keppa í handboltanum en það eru 3 stefnur núna á vorönninni. Sú fyrsta í lok janúar.
Við hjónin förum út að hlaupa svona öðru hvoru þegar við erum orðin tæp á geðheilsu hérna inn í kompunni. Það er ágætt, þó verst þegar Guðjón er farin að æpa á öðru hvoru götuhorni eftir kerlingunni, svona gefa sig í þetta, áfram gamla..... en ég veit að hann vill vel ...... á honum.
bestu kveðjur að sinni Dikka
Hvernig hljómar þetta
Quote of the day:
"Whatever you give a woman, she will make greater. If you give her sperm, she'll give you a baby. If you give her a house, she'll give you a home. If you give her groceries, she'll give you a meal. If you give her a smile, she'll give you her heart. She multiplies and enlarges what is given to her. So, if you give her any crap, be ready to receive a ton of shit."