« halló | Main | Hvernig hljómar þetta »

Sunnudagur að kveldi kominn

Sælt veri fólkið. Nokkrar línur frá okkur héðan úr kompunni eins og við köllum það.  Kompan er námsaðstaðan okkar Guðjóns þar sem við sitju þessa dagana bak í bak og stundum okkar nám.  Það er nú lokaspretturinn hjá okkur og vonum við að það gangi allt saman vel.  Það er búið að baða börnin og sum þeirra sofnuð enda skóladagur framundan.  Skólahald er allt komið á fullt og heimanám líka.  Sigvaldi var að semja þýskustíl þar sem húsmóðirin komst að því að hennar studentspróf er vel grafið í mynninu.  Ekki var mikil hjálp í þeirri gömlu.  Er nú bara ekki frá því að heimilisfaðirinn sé ögn sleipari í þýskunni!!

Elna var að spila handboltaleik í dag með stúlkum sem eru einu ári eldri en hún og var því að keppa upp fyrir sig.  Hún stóð sig bara vel daman og náði meira að segja að setja inn eitt mark.   Það er nú ekki mikið skorað í þessum leikjum en ég held að liðið þeirra hafi skorað 5 mörk í allt. 

Sigvaldi var líka að keppa og þar eru skoruð öll fleiri mörk en leikurinn endaði 24-29 fyrir Harlev liðinu.  Þetta var spennandi leikur en Harlev liðið fór upp um deild núna um jólin.  Þa var nú ekki verra en að þeir unnu leikinn og sýndu og sönnuðu að þeir ættu alveg heima í þessari deild. 

Símon er nú ekki mikið að keppa í handboltanum en það eru 3 stefnur núna á vorönninni.  Sú fyrsta í lok janúar. 

Við hjónin förum út að hlaupa svona öðru hvoru þegar við erum orðin tæp á geðheilsu hérna inn í kompunni.  Það er ágætt, þó verst þegar Guðjón er farin að æpa á öðru hvoru götuhorni eftir kerlingunni, svona gefa sig í þetta, áfram gamla..... en ég veit að hann vill vel ...... á honum.

bestu kveðjur að sinni Dikka

Posted on søndag, januar 11, 2009 at 21:12 by Registered Commenter[Your Name Here] | Comments4 Comments

Reader Comments (4)

issss hann þarf bara að stoppa og hvíla sig annað slagið og notar þig sem afsökun :) Ég veit að þú stendur þig vel. Knús frá okkur
januar 12, 2009 | Unregistered CommenterGuðbjörg
Hæ elskurnar og takk fyrir síðast og gleðilegt árið.
Sit hérna heima að jafna mig eftir æðahnútaaðgerð og með mína yngstu mér við hlið en hún er með hita og kvef.Kisulingurinn er líka hlaupandi hérna um allt og voða skemmtileg.
Vona að þið séuð rosalega dugleg að halda ykkur að lestri, en þið eruð algjörar hetjur í mínum huga, með stórt heimili og að læra og að sportast þetta alla daga, pjúff.
knús á línuna
Drífa fatlafól
januar 14, 2009 | Unregistered CommenterDrífa F
Komið þið sæl kæru vinir :-)
Gangi ykkur sem allra best á loka sprettinum :-)
Bestu kveðjur til ykkar allra
Maja, Ásgeir og co
januar 23, 2009 | Unregistered CommenterGautavík

Hvernig gengur, ekkert skeð síðan sunnudaginn 11.janúar? Eruð þið enn í prófum kannski, farið vel með ykkur kæru vinir
knus Drive
februar 6, 2009 | Unregistered CommenterDrífa F

PostPost a New Comment

Enter your information below to add a new comment.

My response is on my own website »
Author Email (optional):
Author URL (optional):
Post:
 
All HTML will be escaped. Hyperlinks will be created for URLs automatically.