« sól og sumar í Dk | Main | halló »

Fréttir af okkur

Já en og aftur erum við léleg að skrifa á síðuna hérna enda erum við með tvær síður í gangi þessa og svo http://www.danskur.dk og það var nú meiningin að nota bara eina síðu en svona hafa hlutirnir þróast.
Af okkur er bara allt gott að frétta ég er á fullu í vinnunni eins og Dikka og nú fer að styttast í alvöruna hjá mér þegar ég tek mína fyrstu sólarhrings/viku vakt þ.e.a.s. þann 17.apríl.
Sigvaldi er á fullu í handboltanum en tímabilið þar fer að líða undir lok, Þeir klára núna í lok mars en svo fara þeir til Spánar um páskana í keppnisferð. Hann er líka byrjaður á undirbúningstímabilinu hjá fótboltanum og eru þeir búnir að spila nokkra leiki þar og tapa þeim öllum smiley
Elna er líka á fullu í handboltanum og stendur sig eins og hetja og hefur hún verið að spila með eldri flokknum af og til ásamt sínum flokki. Hún er mjög hörð af sér í handboltanum. Fótboltinn fer að byrja hjá henni líka og tók bekkurinn hennar þátt í skólamót um daginn og gekk það bara vel hjá henni, og að eiginn sögn þá bar hún af í sínum aldursflokki smiley þótt að liðinu hafi nú ekki gengi eins og best var á kosið sem sagt 1 sigur, 1 jafntefli (skandall hjá þjálfara) og 1 tap. Elna er líka í sundi 1 sinni í viku þannig að það er nóg um að vera hjá henni.

Símon er einnig í handboltanum og gengur honum rosalega vel, hefur hans lið nánast unnið alla leik í þeim mótum sem þeir hafa tekið þátt í. Það er rosaleg gaman að sjá drenginn reyna apa eftir stóru strákunum, sem sagt að lyfta sér upp og skjóta. Hann er líka að æfa sund 1. sinni í viku og svo eins og hjá hinum þá fer fótboltinn að byrja.

Svona almennar fréttir af okkur þá lítur út fyrir að við hjónin séum á leið til Gautaborgar í lok júlí á tónleika með U2. Svo standa fyrir dyrum framkvæmdir á húsinu, það átti alltaf eftir að ganga endanlega frá flutningnum á herbergjum krakkanna upp. Það sem eftir er að klára setja glugga á hvort herbergi fyrir sig og svo eina hurð út á svalirnar.

Posted on onsdag, marts 18, 2009 at 20:48 by Registered Commenter[Your Name Here] | Comments2 Comments

Reader Comments (2)

Jibbý mikið er gaman að heyra frá ykkur kæra fjölskylda. Þið eruð auðvitað alltaf jafn busy í íþróttum og vinnu þannig að það er skiljanlegt að þið séuð ekki ALLTAF af skrifa hérna. Svo hefur þessi fésbók tekið mikinn tíma til sín.
Allavega góðar kveðjur til ykkar
Drífa
marts 25, 2009 | Unregistered CommenterDrífa Flosa
Er þessi síða ekki ennþá virk? er ég eitthvað að misskilja hérna.....
Allavega segi ég bara gleðilegt sumar kæru vinir
kv.Drífa og co
april 23, 2009 | Unregistered CommenterDrífa

PostPost a New Comment

Enter your information below to add a new comment.

My response is on my own website »
Author Email (optional):
Author URL (optional):
Post:
 
All HTML will be escaped. Hyperlinks will be created for URLs automatically.