Main | Fréttir af okkur »

sól og sumar í Dk

hæhæ hérna er allt á fullu í sumar og sól. Við erum á fullu í pallagerð hérna í garðinum og verðum bráðum komin á bikiní.  Ef veðrið heldur svona áfram þá veit ég ekki hvað. Sumir eru hræddir um að þetta sé sumarveðrið sem er að leika um okkur núna og svo fáum við ekki meira en við íslendingarnir erum viss um að þetta verði svona í allt sumar.....

En annars er svo sem nóg að gera í vinnum hjá okkur hjónunum og skólum hjá þeim yngri. Íþróttalífið er jú alltaf a sínum stað og fótboltinn byrjaður aftur og kominn á fullt.  Guðjón er að þjálfa Elnu og hennar lið og það er mjög vinsælt hjá Elnu. Stelpunum hefur fjölgað helling og sem betur fer eru þeir tveir þjálfararnir og með 3-4 aðstoðarmenn.  Símon er að æfa með sínum aldurshóp og fer stundum á æfingar með aðeins eldri strákum. Þegar það gerist er hann á 4 æfingum í viku, honum finnst það nú ekki slæmt drengnum. Sigvaldi æfir nú með sínu holli en er svona eitthvað að kíkja á junior liðið. hann veit ekki alveg hvar hann vill vera blessaður. Nú Guðjón fer að sjáflsögðu á æfingar með sínu liði og er svo hálf dauður tvo daga á eftir og sama ræðan er sögð nokkrum sinnum í mánuði; "jæja nú held ég að ég fari að hætta þessu". En ég er nú farin að þekkja minn mann og nikka bara hausnum án þess að gera nokkrar væntingar. Ég held að þetta sé svona ákveðinn varnarmekkanismi hjá mér.

Djamm á morgun hjá okkur ísl. stelpunum og kosingarvaka hjá íslensku körlunum hérna í Harlev. Alltaf nóg að gera í félagslífinu.

jæja búin að ræða vinnu, skóla, íþróttir og félagslíf, jú ég er að fara í kvennahlaup á morgun í sól og sumaril.

var ég búin að nefna sólina  hérna hjá okkur.

Gleðilegt sumar allir saman og bestu kveðjur frá Harlev

Posted on fredag, april 24, 2009 at 13:39 by Registered Commenter[Your Name Here] | Comments2 Comments

Reader Comments (2)

Dugleg Dikka mín, líst vel á þig. Vona að sólin haldist hjá ykkur í sumar en að hún komið líka hingað öðru hvoru allavega. Hér fraus saman vetur og sumar og það á víst að þýða gott sumar, en það hefur nú ekki mikið hlýnað síðan á fimmtudag samt. Best að vera þolinmóður og vona það besta. Mér finnst gott hjá Guðjóni að halda áfram í boltanum, hann getur þetta sko alveg, toppíþróttamaður. Gangi þér vel í hlaupinu á morgun Dikka mín, þú ert ekkert smá dugleg í hlaupunum. Ekki skrítið að börnin ykkar séu á kafi í sportinu með svona fyrirmyndarforeldra.
Hafið það gott elskunar og endilega sendið okkur línu við og við.
kveðja Drífa
p.s. komið þið nokkuð heim í sumar?
april 26, 2009 | Unregistered CommenterDrífa F
Nei gaman að sjá að þið kíkið í tölvuna annað slagið. Ég kíki hér reglulega við bara svona til þess að athuga hvort ég sé að missa af einhverju. Ég veit reyndar alveg að ég er að missa af annsi mikilu en maður verður bara að lifa með því. Sól segiru... ohh hvað ég sakna hennar en hún sést reyndar annað slagði hérna megin í heiminum en hitinn er hins vegar fátíðari gestur :( En gaman að lesa hvað þið eruð að brallera og það er nú yfirleitt ekkert lítið ;) Þið eruð náttúrulega bara frábær !!
Knús frá okkur sem söknum ykkar alveg hrikalega
Guðbjörg og Eiríkur
april 27, 2009 | Unregistered CommenterGuðbjörg

PostPost a New Comment

Enter your information below to add a new comment.

My response is on my own website »
Author Email (optional):
Author URL (optional):
Post:
 
All HTML will be escaped. Hyperlinks will be created for URLs automatically.