Föstudagur
Þá er komið að nýrri færslu hérna á síðuna hjá okkur. Tíminn líður hratt eins og alltaf og bráðum verða komin jól. Lífð gengur sinn vana gang í Harlev. Síðasta vika einkenndist af samtölum við kennara barnanna. Það kom bara nokkuð vel út. Elna toppaði nú bræður sína þar sem kennararnir áttu ekki orð til að lýsa blessaða barninu. Hún er bara einstök, alltaf jákvæð, dugleg og einbeitt. Var glöð og dugleg að hjálpa krökkunum í bekknum sínum.
Sigvaldi fékk líka fína umsögn, mætti vera einbeittari og áhugasamari um námið en er alltaf jákvæður og brosandi. Þarf að taka betur eftir í tímum og duglegri að læra heima.
Símon eins og systkinin sín var duglegur og atorkumikill. Hann á ekki í neinum vandræðum annað en að hann vantar nokkur orð til að geta tjáð sig betur. Hann er samt of duglegur í dönskunni til að vera í aukatímum sem hann hefur fengið í skólanum þannig að nú eigum við að vera duglegri hérna heima við að kenna honum dönsku, eða reyna það amk.
Þannig að nú er búið að seta markmið fyrir alla. Símon á að læra fleiri dönsk orð og þá meðal annars smáorð, Elna þarf að vera duglegri í margföldunnartöflunni, Sigvaldi þarf að verja meiri tíma við heimanámið.
Foreldrarnir þurfa fleiri tíma inn í sólarhringinn til að geta lært sjálf og lært með börnunum.
Þetta er sem sagt Grönhöjvej í dag.
Helgin framundan og hugsanlega smá snjór líka.
Góða helgi Dikka
Myndir af okkur
Ég vil benda á linkinn myndir af okkur hér til vinstri á síðunni
Það eina sem fólk þarf að gera til að fá aðgang er að senda okkur e-mail i gegnum síðuna hérna og við sendum link til baka með aðagangi.
Ritstífla búin að koma sér fyrir í Harlev
Það er sko óhætt að segja að hér haf ritstífla verið að hrjá heimilisfólkið á bænum :(
Það er samt búið að vera alveg nóg að gera, það vanalega að sjálfsögðu þ.e.a.s. börnin í skólanum, íþróttum og það þarf að sjálfsögðu að stunda félagslífið í kringum bekkina hjá þeim, danir mjög duglegir að búa til alskonar samkomur.
Sigvaldi:
Það er búið að vera nóg að gerast hjá honum í kringum skóla og íþróttir. Fótboltinn kláraðist 1. nóv. með lokahófi sem innihélt smá fótboltamót þar sem strákum og stelpum frá nokkrum árgöngum var blandað saman i lið, eftir það var svo verðlauna afhending sem endaði með pulsuparti og frönskum að hætti dana. Nú er það handboltinn sem tekur allan tíman, gengur það ljómandi vel hjá honum. Hann er kominn í úrtakshóp fyrir Árhúsasvæðið sem kemur svo til með að keppa við önnur svæði í Danmörku. Þarna byrjuðu ég veit ekki hve margir strákar fæddir '94 allavegna 60 strákar, en nú er búið að skera niður í 26 stráka og einn niðurskurður eftir. Sigvaldi og annar strákur héðan úr Harlev eru enn í hópunum og nú er bara að bíða og vona að þeir komist í gegnum síðasta niðurskurðinn sem verður í byrjun desember.
Elna:
Elna er líka á fullu í fótboltanum sem reyndar kláraðist á sama tíma og hjá Sigvalda, svo núna er það handboltinn sem hefur tekið við af fótboltanum hjá henni. Hún er að byrja í handboltanum eftir að hafa tekið sér eitt ár frí frá honum, og var hún orðinn aðeins á eftir jafnöldrum sínum þegar hún byrjaði en hefur náð þeim aftur. Þjálfarinn hennar kom til hennar um daginn og sagði við hana að hún mætti alsekki hætta að æfa fótbolta (á að vera handbolta ;-) ) þar sem hún væri efni í handboltastjörnu. Það er gaman að fá svona koment frá dönskum handboltaþjálfara þar sem danskur kvennahandbolti er mjög framarlega í heiminum. Svo er mín byrjuð í sundi einu sinni í viku með skólasundinu, þannig að vonir okkar foreldrana er að hún komi til með að spjara sig á þeim vetfangi líka. Í gær var svo skautaferð sem var skipulögð af foreldraráðinu í bekknum hennar og fór öll fjölskyldan af stað í það, nema Dikka þurfti að fara snemma til vinnu. Þetta var voða gaman og Elna er mjög dugleg á skautunum, væntanlega kemur það sér að góðu að hún er mikið á línuskautum.
Símon:
Það er það sama hjá honum, fótboltinn búinn en það var aldeilis að hann fór í gang þegar hann fékkst loksins til að fara á fótboltaæfingar. Hann æfði tvisvar í viku og fór stundum með Elnu á æfingu hjá henni og var með þar. Spilaði nokkra leiki bæði æfinga og alvöruleiki með eldri strákunum þar sem það var ekki mikið um leiki í hans árgangi, hann gaf þeim eldri ekkert eftir þannig að það er mikið efni í stráknum. Hann er að sjálfsögðu að æfa handbolta eins og hin systkinin og er nokkuð efnilegur á því sviðinu, hann tók þátt í móti um daginn og sýndi ótrúlega takta. Það er með hann eins og hin systkinin að ef það er bolti í spilinu þá er hann góðum með hann. Símon er kominn í sund einu sinni í viku og erum við að sjálfsögðu að vona að hann verði orðinn synntur í lok vetrar, það er nú samt stundum erfitt að koma honum niður í vatnið þar sem það er nú ekki nema 26 gráður. Drengurinn er með endemum vinsæll af nýju skólafélögunum þar sem síminn byrjar hér um helgar upp úr 9 á morgnana og einhver að spyrja hvort hann vilji leika. Það er orðið þannig núna að við erum farin að taka við pöntunum um leiktíma hjá honum :)
Dikka:
Dikka er á kafi í vinnu og að berjast við að koma einhverju á blað fyrir lokaverkefnið sitt, það er smá barningur þar sem efnið sem hún er að skrifa um er ekki svo mikið komið í umræðuna og þar af leiðandi ekki til margar ransóknir sem hún getur stust við. En við hin í fjölskyldunni höfum fulla trú á henni þannig að hún á eftir að klára þetta með stæl. Annars hefur hún nóg í að snúast með börnin í að keyra þau til handbolta eða í heimsókn hjá hinum og þessum vinum eða í bíó.
Gaui:
Af mér er þ.að skólinn sem hefur allan forgang í augnablikinu, fótbolta tímabilið búið og þar af leiðandi búinn að segja upp sem þjálfari. Það gengur ágætlega með lokaverkefnið og er það á áætlun. Lokaverkefnið á að skilast þann 19. desember og prófin verða svo um miðjan janúar. Ég er byrjaður að vinna með skólanum í þeirri vinnu sem ég kem til með að vinna þegar ég er búinn með skólann. Þetta gerðist mjög hratt þar sem ég var að byrja að þreifa fyrir mér um miðjan september og sá auglýsingu um að það vantaði sterkstraums ingeniör hjá fyrirtæki upp í Randers, prófaði að henda inn umsókn á þriðjudegi, var kallaður inn í viðtal á föstudeginum og var kominn með vinnu á mánudeginu þar á eftir. Þótt ótrúlegt megi virðast fór danirnir mjög snöggir að taka ákvarðanir í þetta skiptið.
Af okkur:
Annars er bara allt gott að frétt af okkur, búin að herða sultarólina svo að maður nái endum saman um mánuðinn og gengur það bara vel. Að sjálfsögðu erum við að fylgjast með hremmingunum sem fólk á íslandi á í, og prísum okkur sæl að vera hérna út núna á þessum ólgutímum. Það eina sem við höfum fundið fyrir þessari kreppu er að það er erfitt að koma peningum hingað út og virðast stjórnvöld ekki mikið vera að gera í því að létta á þeim málum enda hafa þau nóg annað að gera og við getum étið það sem úti frís eins og aðrir íslendingar. Þurfum reyndar ekkert að vera kvarta þar sem margir hafa það mikið ver en við og hugur okkar er með þessu fólki og við vonum að það fari að rofa til. Það verður mjög gaman að koma til íslands um jólin og verður að í frysta skipti sem við komum heim um jól síðan við fluttum út. Það verður sem sagt lending þann 20. desember og brotför þann 28. desember, þá verður jól og áramót jafnt skipt á milli íslands og danmerkur. Biðjum að heilsa öllum nær og fjær.
Kveðja Guðjón ritari
Myndir af breytingum
Sælt veri fókið,
Hér gengur mikið á eins og áður hefur verið skrifað, búið að flytja stofuna niður og tvö barnaherbergi upp og bæta við einu barnaherbergi. Nú er verið að mála og gera klárt í herbergjunum uppi, í stofunu á aðeins eftir að ganga frá gólflistum og verða þeir teknir í saman með gólflistum á efrihæðinni þegar allt er klárt þar. Sigvaldi og Símon eru fluttir inn í sín herbergi og Elna farin að sofa í sínu en þar á eftir að mála og verður farið í það í dag. Set nokkrar myndir inn á síðuna af framkvæmdum.
Ný stofa / nýtt hús !!!!
Sælt veri fólkið, við erum enn á lífi og höfum það gott. Það er búinn að vera mikill gestagangur hjá okkur og því ekki gefist tími til að setjast niður og semja nokkurn skapaðan hlut. Tölvupósturinn minn hefur heldur ekki verið lesinn í margar vikur!!! þannig að ef þið hafið sent mér mikilvæg skilaboð í gegnum póstinn þá er ég í vondum málum. Ég kem með frekari fréttir siðar. Til að halda ykkur smá volgum þá erum við í stóraðgerðum hérna heima og allt er á hvolfi því það er verið að flytja stofuna niður og herb. upp á efri hæðina. Mamma og pabbi eru að hjálpa okkur og tengdó er í heimsókn líka þannig að það er svaka fjör. bestu kveður í bili Dikka