30.júní
Svona nokkrar línur frá okkur hérna í Harlev á þessum góða mánudegi. Það helsta:
Guðjón er komin með sumarvinnu- hann er núna á leiðinni í vinnuna í fyrsta sinn og með madpakke með sér, hehe... Hann verður að vinna í Randes sem er hérna norður af Aarhus. Þar verður hann að vinna á skrifstofu við að pikka á tölvu og spjalla við vörubílstjóra og bændur. Svona það sem ég veit í stuttu máli, þá er þetta fyrirtæki sem safnar stórgripaskrokkum frá bændum og býr til eldsneyti úr þeim, næs ekki satt.
Sigvaldi og Elna eru komin í sumarfrí og eru mjög feginn og ætla að njóta þess fram til 11.ágúst.
Sigvaldi er búin að hafa nóg að gera í íþróttunum sínum en hann komst áfram í handboltanum og tók eina æfingu í síðustu viku og núna er hann að bíða hvort hann kemst áfram á æfingu sem verður í ágúst. Hann er nú bara rólegur hvað þetta varðar þar sem þessir stákar eru svakalega góðir og hann er því ekkert viss um að hann komist áfram. Spennandi engu að síður. Svo er hann búin að vera á fullu í fótboltanum með liði í Ikast og var að keppa með þeim um helgina. Við vorum mætt klukkan 7 laugardagsmorgun við Sigvaldi (lögðum af stað 6.15) og það má segja að það hafi verið gamli Shell móts fílingurinn all over agen... Tjaldborgir tóku á móti okkur og vellir klárir undir átök dagsins. lið frá mörgum stöðum af landinu voru til staðar og eitthvað var um þjóðverja líka. Sigvaldi stóð sig vel en hann var að sýna getu sína til þjálfarans til að fá umsögn sem við erum að biða eftir núna. Öll fjölskyldan var svo vakinn snemma á sunnudagsmorgun með nesti og det hele... Liðið náði nú ekki í úrslit en Sigvaldi náði að sína góðra hliðar og fékk mikið hrós. Núna er hann svo líka kominn í frí í boltanum.
Núna er svo hans helsta ósk hlaupaskór til að geta haldið sér í formi hérna í sumar og hver veit nema afmælisbarnið fái slíka ósk uppfyllta. Hann á jú afmæli á föstudaginn. Elna á svo afmæli á mánudaginn og búið er að bjóða í stelpuafmæli hérna á mánudag.
Símon er núna á síðustu vikunum í leikskólanum sínum. Þar var haldin sameiginleg afslutning fyrir eldri börnin á föstudaginn sl. Allir áttu að mæta með ákveðið innihald til að geta búið til gamaldags vöfluís handa öllum í leikskólanum og hann kom með nokkrar vöflur og einn líter af ís. Í staðin fyrir að hver og einn kæmi með nammi eða kökur til að kveðja leikskólann. Mjög sniðugt hjá þeim. Hann gisti svo eina nótt í leikskólanum með þeim sem eru að hætta og það var líka rosalega gaman.
Sirrý, Jenni og börn eru búin að vera í heimsókn hjá okkur og það er búið að vera frábært að getað verið með þeim aftur. Börnin hafa algjörlega notið þess og leikið saman, gist saman, farið í bíó, djurs sommerland, hoppað á trambolíninu og fl og fl.
Okkur Guðjóni var svo boðið út að borða á laugardagskvöldið af Jenna og Sirrý og það var algjör snilld. Elstu börnin pössuðu þau yngri og þetta var algjört tilefni til að skála fyrir.
Hjörtur var svo að útskrifast á föstudaginn sem rafmagnstæknifræðingur, það var farið niður í skóla og hann nánast skotinn niður þegar hann kom úr síðasta "prófinu" eða vörninni eftir lokaverkefnið sitt. Ég, Guðjón, Guðbjörg og að sjáfsögðu Karen laumuðumst um ganga skólans og náðum honum algjörlega með kampavínstappanum og íslenskum fánum. Hann var frekar hissa drengurinn hí hí. Hann stóð sig með prýði drengurinn í vörninni, ekki að spyrja að því. Eiríkur var líka í prófi á sama tíma þannig að hann missti af þessu húllumhæi. Við fórum svo á kaffhús og fengum okkur Brunch saman, drengirnir fóru svo á skrallið um kvöldið og voru hæfilega þunnir daginn eftir.
jæja það er víst einhver vaknaður í húsinu og ég verð að fara að taka til hendinni.
bestu kveðjur til allra og njótið nú sumarsins, mér skillst að sumarið sé að koma aftur á þriðjudag með sól og hita :)
Dikka pikka
17.júní
Verkfallinu lauk um sl. helgi bæði hjá hjúkkum og leikskólakennurum þannig að lífið er að falla í réttar skorður. Símon fór glaður í leikskólann í dag að hitta vini sína. Ég fer nú ekki að vinna fyrr en á fimmtudagsmorgun en þá er líka komið að því. Tek nokkuð þétta vaktabunu næstu daga.
Guðjón er að berjast við að lesa undir síðasta prófið en það tekur hann á morgun 18.júní. Hann hefur aldrei verið búin svona snemma og því finnst okkur þetta algjör lúksus. Hann er vanalega búin 28-30. júní. Krakkarnir eru enn í skólanum og fara í sumarfrí 27. júní. Símon er búin að fara í heimsókn í skólann og hitta bekkinn sinn. Þetta er voðalega mikið sport og spennan gífurleg. Hann þekkir nú 3 stráka í bekknum og svo eru þar líka nokkrar stelpur sem hann þekkir. Þau eru tvo íslensk í bekknum, Símon og Herdís sem er með honum í leikskóla. Þau eru nú svo dönsk að þeirra þörf fyrir að tala íslensku er svo sem ekki mikil en það er gaman að því líka fyrir okkur foreldrana að hafa aðra ísl. Foreldra og slúðra svolítið með þeim um hina og skólakerfið, hehe.
Sigvaldi er búin að vera að prófa sig áfram bæði í handboltanum og fótboltanum. Hann tók þátt í talent æfingu á föstudaginn sl. Og er núna að bíða eftir að þjálfararnir velji 25 stráka til að fara á næstu æfingu. Þegar við mættum voru flestir strákarnir mættir og við gátum ekki sagt annað en váááá, þeir voru þvílíkt massaðir og stórir upp til hópa. Þeir voru 4 strákarnir sem mættu frá Harlev og við fórum að velta því fyrir okkur hvort að það væri annað fóður sem hinir strákarnir fengu. En Harlev strákarnir stóðu sig með príði og erum við svolítið spennt að sjá hvort einhver af þeim hafi komist áfram. Sigvaldi fór svo á prufuæfingu til Ikast sem er nánast inní miðju landi. Þetta er lið sem er töluvert ofar í getu og metnaði en það lið sem Sigvaldi er að spila með. Sören Sloth sem er þjálfarinn hans Sigvalda kom okkur í samband við þetta lið og er planið að Sigvaldi fái að prufa sig í nokkrar æfingar í sumar og kannski keppa með þeim nokkra leiki. Þetta er nú meira gert til þess að Sigvaldi finni taktinn sinn í getu og öðru þar sem hann er með frekar löku liði hérna í Harlev. Það eru samt sem áður vinir og góður félagsskapur fyrir hann.
Ég er að hugsa um að bulla nú ekkert meira að sinni,
Gleðilegan 17.júní.
Sigvaldi og félagar á talent æfingu í handbolta
Föstudagur í sól og hita
Það er enn verkfall, úff hvað það æltar að dragast á langinn og einhvern veginn ekkert að gerast í þeim málum.
En tíminn með Bínu, Bjössa, Guðbjarti og Styrmi var fljótur að líða. Þetta var frábær tími með þeim og ýmislegt brallað í hitanum. Þau voru virkilega heppin með veður hérna. Farið var í smá strandferð, Legoland heimsótt, lágmarks búðarferðir, hlaupferðir, gönguferðir, tónleikaferð ........
Það er líka svo gaman að hafa náð sambandi við litlu frændur mína aftur, ég fékk meira að segja að ég væri lang besta frænkan í bænum af honum Guðbjarti mínum, Styrmir kann sko alveg að segja nafnið mitt og hjá öllum í fjölskyldunni sinni og ef vel var hlustað þá gat hann næstum sagt nafnið sitt. Honum fór mikið fram í að tala meðan á Danmörkudvöl hans stóð. Zoe blessunin fékk líka fullt af athygli og var rosalega dugleg að haga sér vel. Núna þegar þau eru farin má enginn vera að því að leika eins mikið við hana eða bara hafa hana í augsýn og því að sækja eftir athygli á allan mögulegan hátt. hún meira að segja stökk yfir búrið sitt til að komast inn í eldhús og ekki er búrið hennar neitt lítið. Þar komst hún í ruslið sem saman stóð af kaffikorni og morgunkorni sem börnin höfðu ekki klárað um morugninn. Svo stóð hún föst inní eldhúsi skömmustuleg þegar ég kom niður aftur.
Simon er líka enn fastur heima út af verkfalli hjá leikskólakennurunum. Elna er heima með hita og hálsbólgu og missir sennilega af overnattning með bekknum í kvöld. ætlum að taka status á henni um hádegið og sjá hvernig hún hefur það en henni langar ofsalega mikið til að fara með þeim.
Guðjón er á fullu í prófum þessa dagana og reynum við hin að gera það eins bærilegt og hægt er. Hann er búinn í einu prófi og fer svo í tvö í næstu viku. Klárar þann 18.júní.
jæja best að sinna þessum börnum sínum.
Status á Grænuhæðarvegi
Þá er komið að smá skrifum héðan frá Grönhöjvej. Þetta eru spennandi dagar hjá okkur og nóg að gerast í kringum okkur þessa daga. Á þriðjudagskvöldið komu 12 nemendur og 2 fullorðnir frá Tálknafirði hingað í Harlev. Við höfum verið með puttana í því að redda þeim gistingu, dýnum og smá matarkyns. Kristján frændi er einn af þeim og það var ofsalega gaman að sjá hann aftur. Krakkarnir okkar hafa dandalast með þeim aðeins og þá sérstaklega Sigvaldi. Hann fékk meira að segja að fara með þeim í Djurs sommerland í gær og taka sér frí úr skólanum. Síðan komu þau hingað í gærkveldið og við grilluðum pylsur og hamborgara á meðan við horfðum á Eurovision undanúrslitin. Þau fara svo til Köben á laugardaginn og heim til Íslands á sunnudaginn.
Sigvaldi fékk svo eftir allt saman spangir á miðvikudaginn. Þannig að þessir dagar eru frekar erfiðir og kannski fínt að hann sé að dreifa huganum með Tálknfirðingunum. Jógurt er megin uppistaða fæðu hjá honum og að sjálfsögðu ísinn góði.
Stór dagur var í lífi Símonar í gær en hann keppti sína fyrstu fótboltaleiki. Þetta var mini turnering þar sem hann fékk að spila 3 leiki. Þeir unnu einn og töpuðu tveimur en það er nú algjört aukaatriði. Við fjölskyldan og Zoe vorum á hliðarlínunni og hvöttum óspart. Þetta er frekar stór upplifun að sjá yngsta afkvæmið standa þarna inná velli því það hefur nú yfirleitt verið hann sem hefur þurft að koma með og horfa á hin systkinin sín eða pabba spila. Nú geta þau farið að borga fyrir sig og farið að horfa og hvetja hann. Móðirin var nú eiginlega stoltust af því þegar hann tók í hendina á hinum andstæðingunum og þakkaði fyrir leikinn. Litla barnið…..
Elna keppti líka í vikunni og er að keppa aftur í næstu viku, nóg að gera hjá henni blessaðri. Hún er svo að fara að gista með skátunum í næstu viku eina nótt. Þar á hún meðal annars að koma með bálkápu, við foreldrarnir horfum nú bara á hvort annað, alveg með þessi skátafyrirbæri á hreinu. En við höfum nokkra daga til að finna út úr þessu, googlum það bara, er það ekki hægt…….
Guðjón lærir sem aldrei fyrr, hann er alla daga í skólanum en prófin byrja 3. júní. Hann er enn að sparka í tuðruna og var nú maður leiksins um daginn hjá Harlev liðinu, gamli karlinn, seigur er hann.
Nú á morgun er annar stórdagur, því þá koma Bína, Bjössi og strákarnir til okkar. Það er nú búið að telja lengi niður á þessu heimili eftir þeim. Okkur finnst langt síðan við höfum séð þau, þó svo að það sé ekki meira en 2 mánuðir. Þetta verður stór stund fyrir þau að hitta Zoe og fyrir hana að hitta þau. Úff hvað það verður mikið að gera hjá þeim að ala hundinn upp en þau fá nokkra daga til þess.
Jæja Símon er heima í dag sökum verkfalls og ég líka, verðum í smá þrifum og slíku áður en heimsóknin kemur.
Bestu kveðjur Dikka og Simon
9.mai
Drengurinn er komin með gat í vinstra eyrað og nokkuð ánægður með það, verst finnst honum að allir hinir strákarnir eru að aba eftir. En Blå mandag gekk mjög vel, kom heim þreyttur og var dreginn á fætur kl 7.30 daginn eftir í skólann. Við foreldrarnir urðum aftur á móti frekar hneiksluð þegar sum börnin fengu leyfi hjá foreldrunum til að skrópa í fyrstu tímana daginn eftir. Ef það er skólaskylda þá mætir maður bara í skólann þegar tímar eru, punktur, basta.
Elna stendur sig vel í skólanum fékk ég að vita í gær, hún er allra hugljúfi og vinsæl stelpa alveg eins og mamma sín. Hún mætti þó rétta upp hendina og hafa skoðanir og álit á því sem talað er um í bekknum með öðrum orðum láta meira á sér bera (alveg eins og mamma sín). Við hérna heima fáum aftur á móti að sjá þessa stelpu sem lætur í sér heyra. Hún fær útrás í ákveðninni og þrjóskunni á okkur blessað barnið.
Símon karlinn er bara í nokkuð góðu jafnvægi þessa dagana, hann stækkar og stækkar blessað barnið og sem betur fer er komið gott veður því þá getum við bara sagt að hann sé í kvart buxum en ekki í of litlum buxum, verst að það er ekki svo mikið um svona kvart ermar á peysum í dag, ég gæti bara klippt ermarnar af og haft þetta ermalaust svona þegar ég sit hérna og spái aðeins í þetta. Nei, nei þetta er auðvitað ekki svo slæmt en hann er amk búinn að fá svona gervigras fótboltasett og þar er frekar vinsælt hjá drengnum. hann fór á æfingu á miðvikudaginn sl. í 22.stiga hita og spilaði í dressinu. Það er svart og samanstendur af svörtum ermasíðum jakka og 3/4 buxum. undir lokinn á æfingunni þegar barnið var við að falla út af vegna hita fór hann úr jakkanum alveg löður sveittur. Það er gott að vera ánægður með fötin sín!!
Framundan er löng helgi og við stelpurnar Karen, Guðbjörg og Oddný erum að fara í bæjar ferð til Randes á eftir aðeins að taka út búðirnar hjá þeim þar. Á sunnudag er svo Femina kvennahlaup uppá 5.2 km sem við ætlum að skella okkur í. Annars verður bara slakað á meðan karlinn lærir.
bestu kveðjur og góða helgi Dikka