Blár mánudagur í dag
Bl ái mánudagurinn byrjaði með morgunkaffi í klúbbhúsinu fyrir fermingarbörnin sem fermdust í gær og foreldra þeirra. Bekkurinn hans Sigvalda fermdist í gær og Sigvaldi fór í kirkju og í fermingarveislu til Sörens vinar síns í gær og fékk smá upprifjun og endurupplifun á þessum frábæra degi. Veðrið alveg frábært og framtíðarspáin er líka mjög góð, sól og hátt í 20 gráðu hiti. Blár mánudagur gengur út á að þau hittast og gera eitthvað skemmtilegt saman allan daginn og fá að sjálfsögðu frí í skólanum. Þau fóru með strætó í bæinn í kl 10 og ætla að eyða peningum í búðunum í einhverja klukkutíma. Síðan fara þau í einhverja leiki og slíkt og versla meira. Borða á Asian-house í kvöld og fara á svo á diskótek i kvöld á skemmtistað sem er niðri í bæ. Foreldrar hafa skipt sér niður og eru með vaktir í bænum í allan dag. Þetta er mikið tilstand og hjá sumum börnunum meira tilhlökkunar efni en sjálfur fermingardagurinn. Sigvaldi hefur beðið eftir þessum degi. Að sjálfsögðu var búið að versla föt fyrir daginn en það eru annars vegar fermingarföt og hins vegar föt fyrir mánudaginn. Sigvaldi og Sören vinur hans voru að plotta það að fá sér gat í eyra ídag og búnir að fá leyfi fyrir því, verður gaman að sjá hvort að þeir þori því svo þegar á hólminn er komið.
Annars er helgin búin að vera notarleg hjá okkur, hún var löng þar sem frí var í skólum á fimmtudag og föstudag. Við fórum í heimsókn til útlaganna þeirra Karen, Hjartar, Eiríks og Guðbjargar en þau voru í útilegu á tjaldstæði í Horsens. Þar hafði ringt svo mikið fyrr um daginn að svæðið var gjörsamlega á floti. Við þökkuðum fyrir að hafa tekið föt til skiptanna á liðið þar sem sólin lék við okkur og börnin því á leik í drullusvaðinu. Engu að síður góð ferð og allir skemmtu sér vel. Zoe fór meira að segja í sjóinn og ekkert smeik.
Laugardagurinn var afmælisdagur hjá Oddnýju og Stefáni og það var afmælisveisla ársins. Stóru partýtjaldi slegið uppí garðinum og langborð þar í sem rúmaði alla afmælisgestina um 20 manns. Og svo var bara þvílík veisla hjá þeim. Íslenskt lambalæri grillað á nýja grillinnu þeirra, meðlætið og forréttirnir alveg frábærir. En súkkulaði kakan verður lengi umræðu efni í hverfinu. Hún var ein sú besta there is. Sigvaldi passaði Símon og Elnu og ekki má geyma Zoe á meðan veislunni stóð og stóð sig með prýði.
En annars ætla ég að fara að gera eitthvað á heimilinu, eða bara drífa mig út í sólina. Ég er víst enn í verkfalli og er heima!
Bestu kveðjur Dikka
verkfall
Sælt veri fólkið. Verkfall hjá mér þessa dagana. Ég sit heima í dag en ætti að vera að vinna, ég er á svokallaðri bakvakt. Það eru 4 hjúkkur á hverri vakt og ein á bakvakt ef upp koma veikindi hjá hinum hjúkkunum. Annars er svo rólegt að þær sem eru að vinna hanga bara en mega ekki fara heim og ekki vinna í neinni pappírsvinnu því það er þá verkfallsbrot. Hálf asnalegt allt saman. Annars er búist við löngu verkfalli segja þeir sem þykjast hafa vit. Ég er samt sem áður að fara að vinna alla helgina, vonandi höfum við bara einhverja sjúklinga sem við getum hjúkrað!! ég er að hugsa um að taka spilastokkinn með til öryggis.
Gott veður hefur verið hjá okkur og verður víst fram að helgi en þá á að fara að rigna aftur. Það er reyndar töluvert rok með sólinni og ca. 10 gr hiti.
Zoe stækkar og stækkar og er hún að verða eins og meðal Labrador á hæð. Hún stendur sig nokkuð vel hérna ein heima en 3 tímar eru max það sem hún hefur verið ein. Stundum komum við heim eins og innbrotsþjófar hafi kíkt við en þá hefur henni farið að leiðast og tekur þá það sem “hendi” er næst og tuskar það til. Sem betur fer hafa það oftast verið blöð og slíkt sem hafa fengið fyrir ferðina. Hún er líka ansi klók að finna út úr því hvort það sé eitthvað ætilegt í eldhúsinu um leið og við erum farin út. Þetta hefur kennt okkur að ganga betur frá hlutunum hérna sem er bara jákvætt á allan hátt.
Aprilmanudur
Aftur komin föstudagur og það minnir mig á að ég á að skila smá verkefni í skólann minn en hvað um það. Verð nú að setja inn nokkrar línur þar sem ég er svo ánægð með mig og Karen. Við fórum nefnilega út að hlaupa áðan og samkvæmt okkar mæligræjum þá hlupum við 8,9 km. Það er nú met þetta hlaupaárið. Jíbbíiiiiiii
En annars er lífið bara í vor hugleiðingum, fyrsti fótboltaleikurinn hjá Sigvalda í deildinni er á morgun, Guðjón er nú líka að spila svona með brákuð rifbein en það er nú ekkert verið að hlífa sér þrátt fyrir það. Það er amk ekki hlustað á mann en það er ekki í fyrsta skiptið þegar heilsa hans er annars vegar enda löngu hætt að vorkenna honum í þeim bransanum.
Nú á morgun verður sem sagt farið með Zoe á sinn fyrsta fótboltaleik hérna uppá völl og verður forvitnilegt hvað hún tollir lengi þar. Ætli maður taki ekki með teppi handa henni og Símoni svo þau geti hvílt sig og sitt hvort beinið, hehe...
Elna er byrjuð að æfa fótboltann aftur og var farið í verslunarferð til að kaupa nýja fótboltaskó handa henni og að sjálfsögðu voru keyptir skór á Símon líka, það verður spennandi að sjá hvort hann þori að láta sjá sig á æfingu en hann heldur því fram núna að hann ætli að byrja að æfa í sumar.
Annars biðjum við að heilsa og segjum bara Góða helgi til ykkar allra
Alltaf gott að koma heim
Jæja þá erum við aftur komin heim eftir ferðalag til Íslands. Þetta var mjög góð ferð hjá okkur og Sigvaldi fermdist með pompi og prakt. Hann átti frábæran dag þann 16. mars þegar hann fór í gegnum viðeigandi athafnir í kirkjunni með jái, minningarorði og amen í lokinn. Hann fermdist með gamla bekknum sínum úr Kópavogsskóla og það var nú líka ferlega gaman. Það var mjög gaman að sjá þessa krakka eftir tæp 4 ár. Ekki frá því að Sigvaldi hafi verið svolítið feiminn við fermingar systkinin sín. Baldur var hans stoð og stytta í þessu öllu saman og stóðu þeir sig með prýði. Hann fékk margar flottar gjafir og lagnar okkur að þakka fyrir drenginn svona hér og nú. Veisla var haldinn í veislusal Áskirkju seinna um daginn með fjölskyldum og vinum. Við fengum frábæra hjálp frá fjölskyldum okkar við að smella saman þessari fermingarveislu og niðurstaðan var bara nokkuð góð. Um kvöldið var ég svo reyndar komin með ælupest og það er spurning hve marga ég hef náð að smita í veislunni, ég veit um nokkra......., sorry.
Að sjálfsögðu höfðum við það mjög gott á frónni, fórum í stutta sumarbústaðarferð og komumst í pottinn sem er bara snilld. Og bara þetta að vera með fólkinu sínu í þennan tíma er frábært.
Nú við komum út aftur á laugardeginum fyrir páska og þá náðum við í ZOE okkar, sem ætlar að búa hjá okkur í nokkra mánuði áður en hún verður send heim til Íslands. Zoe er hundur sem Bína og Bjössi eru að fá sér en er svo lítil ennþá og má ekki fara heim fyrr en hún verður ½ árs. Hún er gleðigjafinn á heimilinu og kryddar tilveruna hjá okkur. Hún sér til þess að halda smáhlutum frá gólfinu og að það sé reglulega ryksugað og skúrað J .
Jæja nóg í bili, við biðjum að heilsa í bili
dikka