Komin til Íslands

Jæja þá erum við mætt á frónna, ég og börnin.  Guðjón og Bjössi koma á laugardaginn.  Fermingarundirbúningur er í fullum gangi og líka eins gott.  Allt verður jú að vera klárt á sunnudaginn.  en annars má ég ekki vera að þessu erum á leið í kirkjuna á æfingu.......

Posted on onsdag, marts 12, 2008 at 16:22 by Registered Commenter[Your Name Here] | CommentsPost a Comment

Þá fer að koma að því !!

Já ég veit það er orðið laaaaaaaaaangt síðan við skrifuðum hér inn, sorry.  Það má örugglega skrifa það á skriftar leti eða að við höfum haft nóg að gera uppá síðkastið.  En allavegna verða skrifaðar nokkrar línur hérna núna.

Það sem hefur drifið á okkar daga undanfarið er að sjálfsögðu smá fermingar undirbúningur þeas búa til lista yfir þá sem á að bjóða og senda það allt út, nú og svo velja fæðuna í veisluna.  Þetta er nú allt að skríða saman undir styrkri stjórn systranna og systur minnar og hef ég nú fulla trú á að fólk fari nú ekki svangt frá borðum þann 16.mars ef ég þekki þessar valkyrjur rétt.  Annars er þetta bara búið að vera skólinn hjá mér og þótt ég sé nánast ekki nema 3 daga í viku í kennslu þá hef ég nú reynt að vera alla daga þar til að þykjast vera læra þegar ég er ekki í kennslu.  Hef troðið mér inn hjá Hirti félaga mínum þeas. í gruppuherbergið hans og sitjum við nú tveir þar og leggjum hart að okkur við námið :) Dikka er á fullu í sinni vinnu og er ég nú ekki viss hvort hún sé að vinna á gamla staðnum eða hvort hún er í praktík, þetta er orðið smá ruglingslegt, og er ég hættur að hafa overblik yfir þetta hjá henni, en eitt veit ég að við eigum að útskrifast á sama tíma.  Annars er allt á fullu hjá henni að kaupa servíettur og aðra muni sem eiga að príða væntanlegt veisluborð, hef ég nú grun um að við getum sett upp verslun með restina því ég held að það sé minnst búið að kaupa 10 mismunandi liti og annað eins af gerðum, konur eiga stundum erfitt með að ákveða sig :)

Sigvaldi er búinn að vera á fullu um helgina að vanda, 3ja tíma handboltaæfing á föstudaginn, þar voru gesta- þjálfarar frá Íþróttaakademíunni í Viborg sem stjórnuðu ferðinni.  Á laugardeginum var það svo fótboltaleikur í Ikast og var það prófsteinn að styrkleika liðsins og stóðust þeir þá prófraun með sæmd, þeir unnu 3-1.  Sunnudagurinn fór svo í handboltaleik um morguninn, sá leikur vanst og skoraði okkar maður 5 kvikindi, eftir það fór hann svo ásamt öðrum fermingarbörnum að ganga í hús og sníkja pening fyrir hjálparstarf kirkjunar, fékk hann kökur að launum fyrir viðvikið.  Seinnipartinn fór hann svo að spila fótbolta þar sem hafði verið mikil afföll í 2.holdet og spilaði hann einn hálfleik þar.  Það var þreyttur unglingur sem fór að sofa á sunnudagskvöldið.

Elna er nú búinn að hafa hægt um sig í íþróttunum í vetur, en byrjaði um helgina á að spila fótbolta með stelpunum í bekknum.  Þetta var svona skólamót og voru þáttakendur bara stelpur, ekki var feriðin til fjár þar sem stelpurnar töpuðu öllum leikjunum sínum.  En að vanda var okkar maður/stelpa í aðalhlutverki að vanda í sínu liði.

Símon hefur en ekki fengist til að stunda íþróttir, hann byrjaði í haust í gymnastik en gafst fljótlega uppá því þar sem hann mátti ekki fara sínar eigin leiðir, en hann var mjög flinkur og hefur hoppið á trampolíninu haft sitt að segja.  En hann er eins og systkinin sín að hann hefur það í sér að hreyfa sig þannig að ég hef nú ekki miklar áhyggjur af honum.  Hann er samt harð ákveðinn í að fara æfa fótbolta í sumar og verður það spennandi hvort af því verður.

Um helgina fórum við í afmæli hjá Hjörvari og Hugo, reyndar bara ég, Símon og Dikka og óskum við þeim drengjum innilega til hamingju með afmælisdagana.

Nú er spennandi tími að framundan, ferming hjá Sigvalda og hundur að koma á heimilið.  Dikka og börnin fara til Íslands á þriðjudaginn næsta og komum við Bjössi hennar Bínu svo á laugardeginum, og svo verður fermingin á sunnudeginum með öllu því sem fylgir.  Já, við Bjössi erum að fara til Hollands á föstudagskvöldið að ná í hund sem fjölskyldan í Skógarlundinum eru að fá sér, og okkur til mikillar gleði þá munum við passa hvolpinn þangað til hann hefur aldur til að flytjast til Íslands.  Eru börnin orðin mjög spennt yfir þessu, Elna fór td. á bókasafnið og fékk lánaða bók um hunda til að geta sýnt vinkonum sínum í bekknum hvernig hund við erum að fara passa.  Nú er komið nóg af blaðri og vonandi kemur önnur færsla áður en langt um líður.

Over and out, Gauz

Posted on tirsdag, marts 4, 2008 at 15:26 by Registered Commenter[Your Name Here] | Comments3 Comments

vetrarfrí

Vetrarfríið hefur einkennst af hósta, hita og öllu því sem þessu fylgir hjá börnunum.  Þetta á sérstaklega við um Elnu sem byrjaði þetta um síðustu helgi og við tók Sigvaldi.  Hann hefur tekið þetta verr út en fyrstu þrjá sólarhringana hans svaf hann eins og honum er lagið í veikindum.  Það eru nú allir komnir á kreik aftur og lætin sem aldrei fyrr.  Einhver orka hefur safnast í börnunum því þeirra samskiptamáti einkennist af slagsmálum og látum.  Skólinn byrjar svo aftur hjá þeim á mánudaga. Símon hefur verið í fríi frá leikskólanum fimmtudag og föstudag.  Það sem hefur bjargað geðheilsu okkar hinna er Guitar hero.  Sigvaldi frárfesti í Wii tölvu og svo var keyptur gitar við þennan snilldar leik.  Við erum hver öðru betri gítarspilarar og það er sko skiptst á,  Sigvaldi hefur smá forskot á okkur enn sem komið er og Guðjón kemur þar á eftir.  Við hin þrjú erum í miklum framförum og erum álíka góð.  Þannig að okkur hefur ekki leiðst í vetrarfríi og veikindu.

Að öðru, ég kláraði mína praktík í vikunni á NIA, þetta var góður tími þar sem ég lærði mikið og margt sem á örugglega eftir að koma mér til góða.  Í næstu vikur fer ég svo á minn gamla vinnustað í grúbbu 30 og verð þar fram í maí.  Þá fer ég í praktík á vöknun á kvennadeildinni á Skejby í 6 vikur.  Eftir það er ég hætt þessu flandri. 

Nú annars er bara vor og blíða hjá okkur hérna í Harlev og tré farin að springa út og vintergækker, lítil hvít blóm farin að láta sjá sig en blómin eru vorboði dananna eins og lóa íslendinga. Um blómin eru samin fjöldin allur af söngvum og ljóðum.

vintergkker.bmp

Svona er Danmörk í dag :)

Posted on lørdag, februar 16, 2008 at 18:22 by Registered Commenter[Your Name Here] | Comments3 Comments

Sjúkrahússögur

Þetta gengur ekki hjá okkur, lítið bloggað uppá síðkastið en svona er þetta stundum. Við erum reyndar búin að vera mest að heiman amk um helgina þar sem Símon og Guðjón hafa verið að kanna heilbrigðiskerfið hérna í Danmörku. Eftir vinnu hjá mér á föstudag var brunað með Símon á slysó þar sem hann hafði fengið högg á höfuðið og ég frekar hysterisk á allt sem heitir höfuðhögg eftir að ég byrjaði á heila og tauga gjörgæslunni. Guðjón kom að Símoni sofandi á leikskólanum þegar hann var að ná í hann á föstud. og fékk svo að vita að hann hefði fengið högg á höfuðið fyrr um daginn. Hann var líka komin með hita og átti erfitt með að halda sér vakandi. Blessað barnið var BARA veikt og bara nokkuð ánægður með alla þessa athygli. Hann fékk svo loksins að sofa blessað barnið.

Morguninn eftir vaknaði Guðjón með þessa þvílíku verki. Hann engdist um í rúminu en var samt eiginlega staðráðin í að fara að spila fótboltaleik. Þegar honum var það loksins ljóst að hann yrði að boða sig veikan gat ég sannfært hann um að við yrðum að hafa samband við lækni. Við keyrðum á læknavaktina og hann var lagður inn med det samme. Hann var ekki með týpiska botnlangaverki en það hefur svo komið í ljós að líkurnar eru meiri en minni að svo hafi verið. Hann var að sjálfsögðu rannsakaður hátt og lágt. Hann fékk líka morfín í æð og við getum sagt að það virkar vel á hann. Hann varð hressari þegar líða tók á daginn og þegar við vorum búin að bíða í fimm tíma eftir lækninum kom hann og gaf Guðjóni leyfi til að fara heim en hann átti að koma daginn eftir í blóðprufur og tékk. Hann fór bæði sunnudag og mánudag í skoðun og þeir hafa núna útskrifað hann þar sem hann hætti þessu botnlanga stússi. Þetta var sem sagt botnlangakast. Karen og Hjörtur björguðu okkur alveg með börnin en Sigvaldi sá um laugadagsmorguninn og þau hjón komu svo eftir hádegi. Símon var öllu hressari eftir nóttina og því hinn sprækasti og gat leikið sér við Kristján Elí. Takk fyrir hjálpina, það var MJÖG gott að vita að börnin voru í góðu yfirlæti hjá ykkur.

Nú Guðjón er semsagt bara að bíða eftir næsta kasti L og vonumst við að þá verði hægt að taka hann, (sko botnlangann).

Þetta var svona það helsta, jú við misstum að sjálfsögðu af matarboði hjá gámafélaginu en við hugguðum okkur hérna heima, Guðjón svaf allt kvöldið og ég horfði á mynd með börnunum okkar.

Bæjó í bili Dikka

Posted on tirsdag, februar 5, 2008 at 10:15 by Registered Commenter[Your Name Here] | Comments5 Comments

vika 5

Þá er vika 5 að hefjast. Þetta verður spennandi vika hjá okkur, Guðjón er að fara í próf á morgun og ég er að fara að halda smá tölu á temadegi á gjörgæslunni á Nörrebrogade. Er svona að semja þetta í huganum og ætla nú að reyna að setja eitthvað niður á blað í kvöld.

Nú Sigvaldi gerði sér lítið fyrir og fékk 100% launahækkun í auglýsingaútburðinum. Málið var að hann ætlaði að hætta útaf lágum launum en þeir spurðu bara hvað hann vildi mikið til að hann héldi áfram þannig að hann fékk það sem hann bað um. Vona að þetta verði alltaf svona auðvelt hjá honum að fá launahækkun í framtíðinni .....

Nú annars er allt við það sama, Guðjón er búin að vera í fríinu sínu (milli anna) að vinna í húsinu, þetta er askoti fínt hjá honum en hann er nú ekki alveg búinn. Núna þarf hann að fara að mála allt húsið þar sem hann er búin að bora, steypa og bletta með nýrri málningu á svo mörgum stöðum að blessað húsið er frekar flekkótt. Það gengur náttúrulega ekki, Guðjón !!!

Annars er Guðjón að byrja á nýju önninni á morgun eða hinn. Hann verður alltaf í fríi á mánudögum og í einum tíma á fimmtudögum, en þriðjudagar frá átta til fjögur og miðvikudagar eru frá átta til korter yfir fimm. Þannig að ég má ekki vinna kvöldvaktir á miðvikudögum ef heimilislífið á að halda. En reyndar eigum við svo marga vini og svo má ekki gleyma unglingnum á heimilinu. Allir tilbúnir í að hjálpa.

Jæja nóg í bili. Kv dikka

Posted on søndag, januar 27, 2008 at 11:20 by Registered Commenter[Your Name Here] | Comments2 Comments